Þrenningarfjóla
Þrenningarfjóla (eða þrenningargras) (fræðiheiti: Viola tricolor) er einært eða fjölært blóm af fjóluætt sem ber þrílit blóm; fjólublá, gul og hvít.
Þrenningarfjóla | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Öruggt
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Viola tricolor L. |
Lýsing
breytaBlómin lúta eilítið og eru 1,5 til 2,5 sentimetrar á lengd. Þau eru hvítleit eða gul í miðju og hafa dökkar æðar. Bikarinn er dökkgrænn eða næstum svartur. Í hverju blómi eru 5 fræflar.
Efstu laufblöðin eru öfugegglaga en neðstu eru svo gott sem kringlótt. Blómið nær 10 til 20 sentimetra hæð og vex það gjarnan í þurrum melbrekkum og á söndum.
Lækningajurt
breytaÞrenningarfjóla hefur t.d. verið notuð til að lækna astma, húðsjúkdóma og við flogaveiki.
Samlífi
breytaÁ Íslandi vex sveppurinn grasmúrgróungur (Pleospora herbarum) á dauðum vefjum ýmissa plöntutegunda,[1] meðal annars á þrenningarfjólu.[2]
Myndir
breyta-
Viola tricolor
var. tricolor -
Viola tricolor
-
Viola tricolor
var. maritima -
Viola tricolor
-
Viola tricolor
-
Viola tricolor
-
Viola tricolor
-
Viola tricolor
var. maritima
Tilvísanir
breyta- ↑ Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8
- ↑ Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Þrenningarfjóla.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist þrenningarfjólu.
Wikilífverur eru með efni sem tengist þrenningarfjólu.