Black Sabbath
Black Sabbath var ensk hljómsveit sem stofnuð var 1968 af Tony Iommi, Ozzy Osbourne, Geezer Butler og Bill Ward. Hún starfaði til 2017. Hljómsveitin er talin ein sú áhrifamesta í þróun þungarokks.
Saga
breytaHljómsveitin kom fyrst saman í Birmingham á Englandi árið 1968 og hét þá raun Polka Tulk Blues Band (seinna stytt í Polka Tulk) en breytti loks nafninu í Earth. Hljómsveitin spilaði blús þangað til Geezer Butler, sem spilaði á bassa, samdi drungalegt lag sem hann nefndi Black Sabbath eftir samnefndri kvikmynd Boris Karloff. Síðan þegar hljómsveitin fór að ruglast saman við aðra sem kallaði sig líka Earth breyttu meðlimirnir nafninu endanlega í Black Sabbath árið 1969. Hljómsveitin ákvað að einbeita sér að drungalegri tónlistarnálgun en meðlimirnir bjuggu í erfiðu hverfi í iðnaðarhverfi Birmingham borgar og fannst hippatónlistin sem fjallaði um ást og frið ekki eiga við sinn veruleika. [1]
Upphafleg liðskipan með Tony Iommi, Geezer Butler, Ozzy Osbourne og Bill Ward er oft talin raunverulega eða sígilda útgáfan af bandinu. Árið 1970 gáfu þeir út tímamótaverkið Paranoid og öfluðu sér vinsælda beggja vegna Atlantsála. Lög eins og Paranoid og Iron Man nutu vinsælda. Eftir því sem vinsældirnar jukust jókst einnig áfengis- og vímuefnaneysla meðlima sem náði hámarki þegar Ozzy var rekinn árið 1977. Hann kom síðar árið 1978 aftur í sveitina en var rekinn aftur árið 1979.
Við hljóðnemanum tók Ronnie James Dio fyrrum söngvari Rainbow. Dio hóf að semja lög og texta með sveitinni og fyrsti ávöxtur þess samstarfs var platan Heaven and hell sem náði töluverðum vinsældum og gaf hljómsveitinni nýjan kraft.[2] Dio kom með öðruvísi söngstíl og notaði óspart fantasíukennda texta og látbragð á tónleikum (djöflahorn).[3] Þó að vel hafi farið með Dio og Sabbath í upphafi myndaðist núningur milli Geezer Butler og Tony Iommi annars vegar og Dio og Vinnie Appice (trommara) hins vegar. Niðurstaðan úr því varð að Dio og Appice hættu í Sabbath. Dio átti endurkomu í Sabbath árin 1991-1993 með plötunni Dehumanizer og síðar. Sveitin spilaði á Skagarokki á Akranesi 26. september 1992.
Eftir að Dio hætti skipti sveitin títt um meðlimi og Iommi hélt beinlínis nafninu gangandi frá miðjum níunda áratugarins til miðs tíunda áratugarins. Nefna má Ian Gillan, söngvara Deep Purple sem söng á plötunni Born again og söngvarann Tony Martin og plötuna Headless Cross á því tímabili. Martin söng á alls 5 breiðskífum með Sabbath frá 1987-1995.
Árið 1997 komu upphaflegu meðlimirnir saman aftur og fóru í tónleikaferðalög til ársins 2005 ásamt því að gefa út plötuna Reunion sem var tónleikaplata en hún innihélt einnig tvö ný stúdíólög.
Eftir að safnskífa með Dio efninu í Sabbath kom út árið 2006 ákváðu þeir sem komu að því tímabili í bandinu að túra undir nafninu Heaven and hell auk þess að gefa út eina breiðskífu. Dio lést árið 2010 og árið 2011 ákváðu upprunalegu meðlimirnir sveitarinnar að koma saman aftur og taka upp nýja breiðskífu. Hún fékk heitið 13. Þó hætti Bill Ward við og Brad Wilk (Rage Against The Machine) var fenginn til að spila á trommur á plötunni. Tony Clufetos (Rob Zombie, Ozzy Osbourne) lék trommur á tónleikum.
Árið 2015 ákvað Sabbath að fara í sitt síðasta tónleikaferðalag um heiminn, The End og hófst það í byrjun árs 2016. Tony Iommi lýsti því yfir að hann hafði fengið nóg af tónleikaferðalögum og vildi taka því hægar. Hann hafði greinst með krabbamein nokkrum árum áður. [4]
Fyrirhugað var að gefa út nýja breiðskífu en að lokum var tekið fyrir það. Þó ákvað Sabbath að gefa út plötu með m.a. 4 óútgefnum lögum sem tekin voru upp á tímabili plötunnar 13. Stuttskífan hlaut nafnið The End og var seld á tónleikum sveitarinnar. [5] Sabbath spilaði síðustu tónleika sína 4. febrúar árið 2017 í heimaborg sinni Birmingham. Iommi útilokaði þó ekki einstaka tónleika og nýtt efni. [6]
Viðfangsefni sveitarinnar hafa verið úr ýmsum áttum: Stríð, trúarbrögð, vímuefni, sálræn barátta og samfélagsmál.
Arfleifð
breytaTónlistarsjónvarpsstöðin MTV gaf sveitinni nafnbótina: Stórkostlegasta þungarokkssveit allra tíma. Sabbath voru á topp-100 lista tímaritsins Rolling Stone yfir mestu listamenn allra tíma og eru kallaðir Bítlar þungarokksins af tímaritinu.
Sabbath hefur veitt hljómsveitum innblástur eins og: Iron Maiden, Slayer, Metallica, Nirvana, Korn, Venom, Judas Priest, Guns N' Roses, Soundgarden, Alice in Chains, Anthrax, Death, Opeth, Pantera, Megadeth, Smashing Pumpkins, Slipknot, Foo Fighters, Fear Factory, Candlemass og Van Halen. Tónlistarstefnur innan þungarokks hafa margar hverjar verið undir áhrifum Sabbath. Á heimsvísu hefur hljómsveitin selt yfir 70 milljón plötur.
Klassíska liðskipanin
breyta- Tony Iommi – Gítar (1968–2017)
- Geezer Butler – Bassi (1968–1979, 1980–1985, 1987, 1990–1994, 1997–2017)
- Ozzy Osbourne – Söngur (1968–1977, 1978–1979, 1985, 1997–2017)
- Bill Ward - Trommur (1968–80, 1982–83, 1984–85, 1994, 1995–98, 1998–2006, 2011–12)
Þekktir fyrrum meðlimir
breyta- Ronnie James Dio - Söngur (1979–1982, 1991–1992, 2006–2010)
- Tony Martin - Söngur (1987–1991, 1993–1997)
- Vinnie Appice - Trommur (1980–82, 1991–93, 1998, 2006–2010)
- Geoff Nichols - Hljómborð (1979–2004)
- Ian Gillan - Söngur (1982–1984)
- Cozy Powell - Trommur (1988–1991, 1994–1995)
Útgefið efni
breytaBreiðskífur
breyta- Black Sabbath (1970)
- Paranoid (1970)
- Master of Reality (1971)
- Black Sabbath, Vol. 4 (1972)
- Sabbath Bloody Sabbath (1973)
- Sabotage (1975)
- Technical Ecstasy (1976)
- Never Say Die! (1978)
- Heaven and Hell (1980)
- Mob Rules (1981)
- Born Again (1983)
- Seventh Star (1986)
- The Eternal Idol (1987)
- Headless Cross (1989)
- Tyr (1990)
- Dehumanizer (1992)
- Cross Purposes (1994)
- Forbidden (1995)
- 13 (2013)
Stuttskífur
breytaSafn og tónleikaskífur
breyta- We Sold Our Soul for Rock 'n' Roll (1976)
- Live at last (1980)
- Live evil (1982)
- The Sabbath Stones (1996)
- Reunion (1998)
- Past Lives (2002)
- Symptom of the Universe: The Original Black Sabbath 1970-1978 (2002)
- Black Box: The Complete Original Black Sabbath (1970-1978) (2004)
- Black Sabbath: The Dio years (2006)
- The End 2017
Heimild
breytaFyrirmynd greinarinnar var „Black Sabbath“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 5. feb. 2017.
Tilvísanir
breyta- ↑ Black Sabbath: 'We hated being a heavy metal band' BBC. skoðað 9. feb. 2016
- ↑ http://www.allmusic.com/album/heaven-hell-mw0000649895
- ↑ http://news.bbc.co.uk/2/hi/8687002.stm
- ↑ http://www.blabbermouth.net/news/black-sabbaths-tony-iommi-on-the-end-tour-i-cant-actually-do-this-anymore/
- ↑ BLACK SABBATH: Four Previously Unreleased Songs From '13' Sessions To Be Made Available On 'The End' CD Blabbermouth. Skoðað 15. janúar 2016.
- ↑ Do the members og Black Sabbath have any regrets? Blabbermouth. Skoðað 20. jan, 2017