Eyríki
Eyríki er ríki sem afmarkast af einni eða fleiri eyjum, það er það á sér ekki yfirráðasvæði á neinu meginlandi. Til eru tvenns konar eyríki:
- Eyríki sem samanstanda af einni eða fleirum óskiptum eyjum, það er þær eru ekki með nein landamæri við önnur ríki. Dæmi um það er Ísland, Japan og Filippseyjar.
- Eyríki sem eiga landamæri að einu eða fleiri ríkjum á einni eða fleiri eyjum yfirráðasvæðis síns (skiptar eyjar). Dæmi um það er Indónesía, Haítí og Papúa Nýja-Gínea.
Ríki sem eiga sér yfirráðasvæði á einhverju meginlandi eru ekki talin til eyríkja, jafnvel þó að mesti hluti ríkisins sé á eyjum. Dæmi um slíkt er Danmörk (Jótland er meginland) og Malasía (Malakka er meginland). Sömuleiðis eru eylönd sem ekki eru að fullu sjálfstæð, þó að þau séu með heimastjórn, ekki talin til eyríkja. Dæmi um slíkt eru Færeyjar, Grænland og Gvam.
Listi eyríkja heims
breytaEins og stendur eru eyríki heims 47 að tölu. Það stærsta og fjölmennasta er Indónesía. Það yngsta er Austur-Tímor, en sjálfstæði þess var viðurkennt árið 2002.
Eyríki heims eftir stærð: