Jón Magnússon (f. 1859)
Íslenskur stjórnmálamaður (1859-1926)
Jón Magnússon (16. janúar 1859 – 23. júní 1926) var íslenskur stjórnmálamaður, þingmaður fyrir Heimastjórnarflokkinn og náinn samstarfsmaður Hannesar Hafstein. Hann tók við forystu flokksins af Hannesi og varð forsætisráðherra í fyrstu samsteypustjórninni sem mynduð var 1917.
1924 varð hann aftur forsætisráðherra fyrir Íhaldsflokkinn og gegndi því embætti til dauðadags.
Jón var kvæntur Þóru Jónsdóttur. Árið 1912 luku þau við að reisa sér glæsilegt íbúðarhús, Hverfisgötu 21, sem enn stendur.
Tenglar
breyta- Æviágrip á heimasíðu Alþingis
- Jón Magnússon, andlátsfregn; frétt í Morgunblaðinu 1926
- Lík Jóns Magnússonar, forsætisráðherra, flutt á land í Rvík; frétt í Morgunblaðinu 1926
- Forsætisráðherra Íslands minnst í Danmörku; frétt í Morgunblaðinu 1926
Fyrirrennari: Ráðherra Íslands |
|
Eftirmaður: Sigurður Eggerz | |||
Fyrirrennari: Sigurður Eggerz |
|
Eftirmaður: Magnús Guðmundsson |
Þessi stjórnmálagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.