25. maí
dagsetning
Apr – Maí – Jún | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2024 Allir dagar |
25. maí er 145. dagur ársins (146. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 220 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1225 - Hákon gamli og Margrét Skúladóttir gengu í hjónaband í Noregi.
- 1300 - Dante Alighieri hélt niður til Vítis í Hinum guðdómlega gleðileik.
- 1420 - Hinrik sæfari varð stórmeistari Kristsreglunnar.
- 1455 - Vopnahléi lauk milli Kristjáns 1. og Karls Knútssonar Bonde og stríð braust út í Svíþjóð.
- 1521 - Þinginu í Worms lauk og Karl 5. lýsti Martein Lúther útlægan.
- 1572 - Ugo Boncompagni varð Gregoríus 13. páfi.
- 1606 - Har Gobind tók við af föður sínum Ardjan Dev sem sjötti síkagúrúinn.
- 1609 - Sigmundur 3. Vasa flutti úr konungshöllnni í Wawel til Varsjár.
- 1627 - Gústaf 2. Adolf særðist við Danziger Haupt í orrustu við Pólsk-litháíska samveldið.
- 1659 - Richard Cromwell sagði af sér stöðu lávarðs enska samveldisins.
- 1660 - Konungdæmi var endurreist í Englandi með krýningu Karls 2..
- 1759 - Tilskipun um ferminguna var fest í lög á Íslandi. Meðal annars var þar ákvæði um að börn skyldu vera orðin 14-15 ára þegar þau fermdust en áður hafði verið heimilt að ferma allt niður í 10 ára börn.
- 1787 - Stjórnlagaþing Bandaríkjanna hófst í Fíladelfíu.
- 1810 - Uppreisnarmenn í Argentínu ráku spænska varakonunginn úr landi.
- 1920 - Guðjón Samúelsson var skipaður húsameistari ríkisins.
- 1929 - Sjálfstæðisflokkurinn stofnaður af þingmönnum Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins. Fyrsti formaður var Jón Þorláksson.
- 1946 - Jórdanía varð til sem sjálfstætt ríki.
- 1961 - Apollo-geimferðaáætlunin hófst í Bandaríkjunum. Markmiðið var að koma manni til Tunglsins og til baka.
- 1966 - Félag kvikmyndagerðarmanna var stofnað á Íslandi.
- 1977 - Kvikmyndin Stjörnustríð var frumsýnd í Bandaríkjunum.
- 1978 - Fyrsta árás Unabomber átti sér stað í Northwestern University í Illinois.
- 1979 - Flugvél frá American Airlines hrapaði á O'Hare-flugvelli í Chicago með þeim afleiðingum að allir um borð (271 manns) létust og 2 á jörðu niðri.
- 1981 - Persaflóasamstarfsráðið var stofnað.
- 1983 - Kvikmyndin Stjörnustríð: Jedinn snýr aftur var frumsýnd.
- 1985 - Hitabeltisfellibylur og áhlaðandi ollu því að um 10.000 manns létust og 250.000 misstu heimili sín í Bangladess.
- 1986 - Hands Across America: 6,5 milljónir manna mynduðu mannlega keðju í þágu baráttu gegn hungri, fátækt og heimilisleysi.
- 1986 - 600 fórust þegar ferju hvolfdi á ánni Meghna í Bangladess.
- 1987 - Mesti jarðskjálfti á Suðurlandi síðan 1912 varð í Vatnafjöllum, suður af Heklu, 5,7 stig.
- 1993 - Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn fyrir fyrrverandi Júgóslavíu tók til starfa í Haag.
- 1995 - Ísafjarðarkirkja var vígð.
- 1997 - Johnny Paul Koroma rændi völdum í Síerra Leóne.
- 2000 - Ísrael dró herlið sitt frá Líbanon eftir 22 ára hersetu.
- 2001 - Erik Weihenmayer varð fyrsti blindi maðurinn sem komst á tind Everestfjalls.
- 2001 - Handklæðisdagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur.
- 2002 - Sveitarstjórnarkosningar voru haldnar á Íslandi.
- 2002 - Skagabyggð varð til við sameiningu Skagahrepps og Vindhælishrepps.
- 2005 - Liverpool F.C. sigraði A.C. Milan í úrslitaleik meistaradeildar Evrópu 2005.
- 2007 - Bandaríska kvikmyndin Bug var frumsýnd.
- 2008 - Knattspyrnufélagið Valur vígði Vodafonevöllinn við Hlíðarenda.
- 2008 - Geimfarið Phoenix lenti á Mars.
- 2009 - Norður-Kórea tilkynnti að landið hefði gert vel heppnaða kjarnorkutilraun. Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu tilraunina.
- 2009 - Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar var stofnað.
- 2011 - Geimferðastofnun Bandaríkjanna hætti að reyna að ná sambandi við Marsbílinn Spirit og lýsti því yfir að verkefninu væri lokið.
- 2013 - Hallsteinsgarður í Grafarvogi var vígður.
- 2013 - Sikileyski presturinn Pino Puglisi sem mafían myrti 1993 var lýstur sæll af kaþólsku kirkjunni.
- 2018 - Almenna persónuverndarreglugerðin tók gildi á Evrópska efnahagssvæðinu.
- 2020 – Bandarískur blökkumaður að nafni George Floyd var kæfður til dauða í haldi bandarískra lögreglumanna í Minneapolis. Dauði hans hratt af stað öldu mótmæla gegn kynþáttabundnu ofbeldi lögreglumanna gegn blökkumönnum.
Fædd
breyta- 1334 - Sukō Japanskeisari (d. 1398).
- 1347 - Heilög Katrín frá Siena (d. 1380).
- 1616 - Carlo Dolci, ítalskur listmálari (d. 1686).
- 1677 - Françoise-Marie de Bourbon, hertogaynja af Orléans (d. 1749).
- 1803 - Ralph Waldo Emerson, bandarískur heimspekingur (d. 1882).
- 1864 - Samúel Eggertsson, íslenskur kortagerðarmaður og skrautritari (d. 1949).
- 1865
- John Raleigh Mott, bandarískur trúboði og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1955).
- Pieter Zeeman, hollenskur eðlisfræðingur og nóbelsverðlaunahafi (d. 1943).
- 1868
- Friðrik Friðriksson, prestur og stofnandi KFUM og KFUK á Íslandi (d. 1961).
- Páll Einarsson, lögmaður og hæstaréttardómari (d. 1954).
- 1913 - Donald Duart Maclean, breskur njósnari, einn af fimmenningunum frá Cambridge (d. 1983).
- 1926 - Miles Davis, tónlistarmaður (d. 1991).
- 1927 - Robert Ludlum, bandarískur rithöfundur (d. 2001).
- 1930 - Jón frá Pálmholti, íslenskur rithöfundur (d. 2004).
- 1938 - Raymond Carver, bandarískur rithöfundur (d. 1988).
- 1939 - Ian McKellen, enskur leikari.
- 1943 - Markús Örn Antonsson, fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur.
- 1963 - Mike Myers, kanadiskur leikari og uppistandari.
- 1965 - Símon Gísli Ólafsson - íslenskur húsasmíðameistari.
- 1968 - Kristjana Stefánsdóttir, íslensk söngkona.
- 1970 - Jamie Kennedy, bandarískur leikari.
- 1972 - Guðmundur Felix Grétarsson, íslenskur rafeindavirki.
- 1974 - Frank Klepacki, bandarískur tónlistarmaður.
- 1980 - Jóhannes Karl Guðjónsson - íslenskur knattspyrnumaður og þjálfari
- 1984 - Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, íslenskur lögfræðingur og Ungfrú heimur 2005.
- 1992 - Jón Daði Böðvarsson, íslenskur knattspyrnumaður.
Dáin
breyta- 1261 - Alexander 4. páfi.
- 1401 - María Sikileyjardrottning (f. 1363).
- 1555 - Hinrik 2. Navarrakonungur (f. 1503).
- 1693 - Marie-Madeleine de La Fayette, franskur rithöfundur (f. 1634).
- 1786 - Pétur 3. Portúgalskonungur, eiginmaður Maríu 1. Portúgalsdrottningar (f. 1717).
- 1789 - Anders Dahl, sænskur grasafræðingur (f. 1751).
- 1840 - Oddur Hjaltalín, íslenskur læknir (f. 1782).
- 1863 - Peter Andreas Munch, norskur sagnfræðingur (f. 1810).
- 1915 - Gísli Hjálmarsson, kallaður þingmaður Bolvíkinga.
- 1925 - Stefán Baldvin Stefánsson, alþingismaður og hreppstjóri (f. 1863).
- 1934 - Gustav Holst, breskt tónskáld (f. 1874).
- 1958 - Steinn Steinarr, íslenskt ljóðskáld (f. 1908).
- 2006 - Desmond Dekker, tónlistarmaður frá Jamaíku (f. 1941).
- 2014 - Wojciech Jaruzelski, pólskur leiðtogi (f. 1923).
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Category:25 May.