Broddgreni
Trjátegund í flokki barrtrjáa
Broddgreni (fræðiheiti Picea pungens) er sígrænt hægvaxta barrtré sem verður allt að 15-23 metra hátt. Það vex í Klettafjöllum Norður-Ameríku en er einnig vinsælt garðtré. Tréð er fylkistré Colorado. Broddgreni líkist blágreni og er kallað blue spruce á ensku, það er hins vegar eins og íslenska heitið gefur til kynna með oddhvasst barr ólíkt blágreni.
Broddgreni | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Picea pungens Engelm. | ||||||||||||||
Á Íslandi hefur það gefist misvel en sumarhitinn er líklega of lágur fyrir það [1]
Heimildir
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Broddgreni Skógræktin
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Picea pungens.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Picea pungens.