Einkalíf er sá hluti af lífi einstaklings sem markast af persónuleika, sjálfsmynd og persónulegu vali. Með tilkomu borgaralegs samfélags á 19. öld verður aukin áhersla á einkalíf með tilkomu einkarýmis sem helgað er fjölskyldulífi og heimilislífi, utan við almannarýmið sem helgað er vinnu og félagslífi. Fram að því mótaðist líf einstaklinga fyrst og fremst af stöðu þeirra og hlutverki innan samfélags, þótt hugmyndir um þroskaferil sjálfsins og persónulega ábyrgð hafi áður verið til innan ýmissa samfélaga. Friðhelgi einkalífs, eða geta einstaklingsins til að hafa stjórn á upplýsingum um sig og líf sitt, er þannig tiltölulega nýtilkomið fyrirbæri.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  NODES