Hans og Gréta er þekkt þýsk barnasaga sem Grimmsbræður gáfu út árið 1812. Sagan segir frá systkinunum Hans og Grétu sem eru skilin eftir í skógi og rekast á norn sem býr í sælgætishúsi. Nornin reynir að fita börnin þar sem hún hyggst éta þau. Grétu tekst að leika á nornina og þau flýja þaðan með fjársjóð. Mörg leikrit og önnur verk hafa verið samin út frá sögunni.

Mynd eftir Arthur Rackham teiknuð árið 1909.
  NODES