Judith Butler (f. 24. febrúar 1956 í Cleveland í Ohio) er bandarískur heimspekingur og kynjafræðingur sem hefur haft mikil áhrif innan kynjafræði og hinsegin fræði, einkum fyrir gagnrýni sína á eðlishyggju í femínisma. Árið 1993 byrjaði hán að kenna við Kaliforníuháskóla, Berkeley.

Judith Butler
Judith Butler
Persónulegar upplýsingar
Fædd(ur)24. febrúar 1956 (1956-02-24) (68 ára)
SvæðiVestræn heimspeki
TímabilHeimspeki 20. aldar,
Heimspeki 21. aldar
Skóli/hefðmeginlandsheimspeki
Helstu ritverkGender Trouble
Helstu kenningarGender Trouble
Helstu viðfangsefnisiðfræði, stjórnspeki, femínismi, kynjafræði

Í bókinni Gender Trouble (nefnd eftir kvikmynd John Waters, Female Trouble) frá 1990 færir hán rök fyrir því að kynferðimótað með flutningi á „stílfærðum líkamsathöfnum“. Þessi endurtekni flutningur skapar þá hugmynd að kynferði sé fólki eðlislægt. Hán hefur verið gagnrýnt fyrir að hafna líkamlegum grundvelli reynsluheims kvenna. Hán hefur líka verið gagnrýnt fyrir að réttlæta klæðskipti með skrifum sínum. Hán notar kynhlutlaus persónufornöfn.[1]

Verk, aktívismi og fræði

breyta

Butler hefur haft gríðarleg áhrif á þriðju bylgju femínisma og hinsegin fræði en einnig á sálgreiningu, meginlandsheimspeki, menningafræðum, bókmenntir og fleira. Háns þekktasta verk er Gender Troubles en hefur gefið út gríðarlegt safn verka, þ. á m. Bodies That Matter og Undoing Gender. Hán hefur einnig talað fyrir ýmsum pólitískum málum, t.d. gagnrýnt stjórnmálastefnu Ísraelsríkis.

Áhrifa má gæta frá verkum Foucault, de Beauvoir og Derrida.

Persónulegt líf

breyta

Frá og með 2020 notar Judith Butler kynhlutlaus fornöfn (they á ensku), hafandi sagt að háni hafi aldrei liðið eins og hán „eigi heima“ innan kvenkyns skilgreininga. Hán er gift Wendy Brown og eiga þau saman soninn, Isaac.

Tilvísanir

breyta
  1. „Das Pronomen ist frei vom Körper - aber es ist nicht frei vom Geschlecht“. www.tagesspiegel.de (þýska). Sótt 25. september 2020.
   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  NODES