Kazuo Ishiguro
Kazuo Ishiguro (カズオ・イシグロ Kazuo Ishiguro, upphaflega 石黒一雄 Ishiguro Kazuo, fæddur 8. nóvember 1954) er breskur rithöfundur af japönskum ættum. Hann fæddist í Nagasaki í Japan en fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Englands á 7. áratug 20. aldar. Ishiguro útskrifaðist frá Háskólanum í Kent árið 1978 með BA-gráðu og meistaragráðu í ritlist tveimur árum síðar frá Háskólanum í East Anglia. Hann býr í London ásamt konu sinni og dóttur.
Ishiguro hlaut Whitbread-verðlaunin árið 1986 fyrir aðra skáldsögu sína, An Artist of the Floating World, og Booker-verðlaunin árið 1989 fyrir þriðju skáldsögu sína, Dreggjar dagsins (e. Remains of the Day).
Sjöunda bók hans, Slepptu mér aldrei (e. Never Let Me Go), náði inn á stutta listann til Booker-verðlaunanna.
Þann 5. október 2017 tilkynnti Sænska akademían að Kazuo Ishiguro hlyti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2017. Rökstuðningur nefndarinnar var að Ishiguro hafi „með tilfinningaþrungnum skáldsögum afhjúpað tómarúmið undir falskri upplifun okkar af tengingu við heiminn“.[1]
Skáldsögur
breyta- (1982) A Pale View of Hills
- (1986) An Artist of the Floating World
- (1989) The Remains of the Day (Dreggjar dagsins)
- (1995) The Unconsoled (Óhuggandi)
- (2000) When We Were Orphans (Veröld hinna vandalausu)
- (2003) The Saddest Music in the World (handrit)
- (2005) Never Let Me Go (Slepptu mér aldrei)
- (2015) The Buried Giant
Leikrit
breyta- (1984) A Profile of Arthur J. Mason (frumsamið fyrir Channel 4)
- (1987) The Gourmet (frumsamið fyrir BBC; síðar útgefið í Granta 43)
- (2003) The Saddest Music in the World (kvikmyndahandrit)
- (2005) The White Countess (sjónvarpshandrit)
Smásögur
breyta- (1981) Introduction 7: Stories by New Writers (Faber and Faber): A Strange and Sometimes Sadness; Waiting for J og Getting Poisoned
- (1990) A Family Supper (Esquire)
- (2001) A Village After Dark (The New Yorker)
- (2009) Nocturnes: Five Stories of Music and Nightfall (Faber and Faber)
Krækjur
breytaVefur Faber and Faber-útgáfunnar um Ishiguro.
- NHK WORLD (December 2017). Exclusive Interview with Kazuo Ishiguro
Tilvísanir
breyta- ↑ „Geymd eintak“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 5. október 2017. Sótt 5. október 2017.