Mállýskusamfella eru mállýskur sem talaðar eru á einhverju landfræðilegu svæði sem eru ekki mjög mismunandi á nágrannasvæðum, en ef farið er lengra burtu verður munurinn á mállýskunum svo mikill að þær eru ekki lengur gagnkvæmt skiljanlegar.

Dæmi um mállýskusamfellur eru samísk tungumál um miðja 19. öld, og ákveðin rómönsk tungumál eins og galisíska sem liggur einhvers staðar á milli kastilísku og portúgölsku. Stundum er talið að meginlandsskandinavísk tungumál (þ.e. danska, norska og sænska) myndi mállýskusamfellu. Á Íslandi er blanda þessara mála oft kölluð skandinavíska.

Tengt efni

breyta
   Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  NODES