Meghalaya
Meghalaya er fylki í norðausturhluta Indlands og eitt af systurfylkjunum sjö. Það á landamæri að Bangladess í suðri og Assam í norðri. Höfuðstaður fylkisins er Shillong. Þriðjungur fylkisins er skógi vaxinn.
Íbúar eru tæpar þrjár milljónir og meirihluti þeirra tilheyrir ættbálkasamfélögum. Yfir 70% íbúa eru kristnir en rúm 13% eru hindúar.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Meghalaya.