Söguborð
Söguborð er myndræn framsetning með teikningum, myndum eða skissum settar fram í röð til að sýna atburðarás. Söguborð eru notuð sem mynræn handrit til að sjá fyrir hvernig kvikmynd, teiknimynd eða gagnvirka miðlun kemur til með að líta út. Söguborð var í upphafi þróað af Walt Disney-fyrirtækinu í kringum 1930 í tengslum við teiknimyndir sem fyrirtækið gerði.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Söguborð.